Velkomin á vefsíðu Félags listmeðferðarfræðinga á Íslandi
Félagið var stofnað í september 1998.
Hlutverk félagsins er að stuðla að fagmennsku, fylgjast með nýjungum á sviði listmeðferðar, þróa og bæta meðferðarleiðir og fræða um listmeðferð á Íslandi.
Listmeðferðarfræðingar sem eru félagar og starfa hér á landi þurfa að hafa framhaldsmenntun á háskólastigi í listmeðferð frá viðurkenndri stofnun. Önnur menntun eða reynsla kemur ekki í staðinn fyrir þessa formlegu kröfu félagsins. Krafan er í samræmi við reglur um störf listmeðferðarfræðinga í Bretlandi og í Bandaríkjunum.
Stjórn félagsins
Íris Ingvarsdóttir formaður
Rakel Eva Gunnarsdóttir gjaldkeri
Elísabet Lorange ritari
Unnur Óttarsdóttir meðstjórnandi
Birna Matthíasdóttir meðstjórnandi