Um listmeðferð
Listmeðferð er meðferðarúrræði sem byggir á sálfræðilegum kenningum og er myndræn tjáning notuð markvisst til að vinna úr reynslu og upplifun einstaklingsins. Í listmeðferð er einstaklingnum veitt tækifæri til að tjá tilfinningar sínar og hugarheim með litum, leir og öðrum myndlistarefnivið í öruggu umhverfi undir umsjón listmeðferðarfræðings.
Sú myndræna nálgun sem notuð er veitir oft aðgang að djúpstæðum þáttum í tilfinningalífi einstaklingsins sem talað mál megnar oft ekki að gera. Myndsköpunarferlið og sambandið við listmeðferðarfræðinginn hjálpar einstaklingnum að tjá ýmsar tilfinningar og hugsanir sem hann hefur ekki náð að koma orðum að og þannig aukið sjálfskilning og sjálfsmeðvitund.
Listmeðferð er runnin frá stofni sállækninga (psychodynamic) og kenninga um listsköpunarferlið. Í listmeðferð er lögð áhersla á sköpun sem er öllum eiginleg og er leitast er við að efla hana. Í vinnuferlinu er ekkert rétt eða rangt og er því engin þörf á færni í myndsköpun. Takmarkið er ekki að gera listaverk eða “fallega mynd” heldur er sköpunarferlið aðal atriðið.
Skjólstæðingar listmeðferðarfræðinga eru á öllum aldri; einstaklingar sem stríða við m.a. geðræn vandamál, hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum eða eru að glíma við sjúkdóma eða fatlanir.